Það er föstudagskvöldið 8. júní árið 2007. Fagurt veður og fuglasöngur, fólk í göngutúr, sumir að ljúka við vinnu í garðinum sínum eftir sólbjartan dag. Kl. 22.53 berst vakthafandi varðstjóra tilkynning frá Fjarskiptamiðstöð Ríkislögreglustjórans, FMR, um að karlmaður hafi skotið að eiginkonu sinni ekki langt frá í litlu friðsælu byggðarlagi á Vestfjörðunum. Um er að ræða hjón á miðjum aldri sem hafa búið saman í hartnær 30 ár. Þessar tvær venjulegu manneskjur hafa búið sér fallegt heimili, í góðu einbýlishúsi í röð fleiri slíkra. En það eru blikur á lofti í sambandi hjónanna.Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.