Hér er um að ræða fyrsta skiptið sem vitað ert til þess að afritunarbúnaður var settur upp í hraðbanka á Íslandi.Í nóvembermánuði 2006 freistuðu tveir erlendir menn gæfunnar til þess að afrita rafrænar upplýsingar um greiðslukort hér á landi en höfðu ekki erindi sem erfiði. Lauk þar með að öllum líkindum löngum og farsælum ferli þeirra við þessa iðju víðs vegar um Evrópu.Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.